Lesa frétt
Um öskufall og vatnsból
16.4.2010
Hverfandi hætta er á því að vatnsból spillist komi til öskufalls á þau, jafnvel þótt þau séu opin. Vatnsveita OR á höfuðborgarsvæðinu hefur um áratugaskeið eingöngu sótt vatn í borholur.
Orkuveita Reykjavíkur rekur fjölda veitna, þ.á.m. vatnsveitna, á sunnan- og vestanverðu landinu og hefur því vara á sér vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Þar koma sérstaklega til skoðunar hugsanleg áhrif á raforkukerfið, hitaveituna í Rangárþingi og svo vatnsveitur, vegna öskufalls. Í samstarfi við heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna vaktar OR vatnsgæði með reglubundnum hætti. Komi til öskufalls á þeim svæðum þar sem OR rekur vatnsveitur mun vöktun verða tíðari og sýnataka aukin.
Á höfuðborgarsvæðinu er alls vatns aflað úr borholum og er ekki talin nein hætta á því að vatn úr þeim spillist. OR tekur vatn fyrir Akranes og Stykkishólm úr opnum vatnsbólum og einnig er talin hverfandi hætta á því að öskufall hafi áhrif á þau. Helsta hættan við öskuna stafar af flúor. Hún er þó mjög lítil þar sem náttúrulegur styrkur flúors í kalda vatninu hjá okkur er afar lítill, eða um 0,01 milligramm á lítra (mg/l) eða lægri. Víða erlendis er flúor bætt í drykkjarvatn og oft miðað við styrkinn 1 mg/l. Það er hundrað sinnum hærra en grunngildin í íslenska vatninu. Leyfilegur styrkur í neysluvatni er enn meiri, eða 1,5 mg/l.
