Lesa frétt
Orkuveitan tekur tvær nýjar loftgæðamælistöðvar í notkun
4.3.2010
Orkuveita Reykjavíkur hefur komið upp tveimur nýjum sjálfvirkum mælistöðvum til að fylgjast með brennisteinsvetni í andrúmslofti. Þær eru við Norðlingaholt í Reykjavík og í Hveragerði. Þriðja stöðin er væntanleg við Hellisheiðarvirkjun. Mælistöðvarnar voru settar upp í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, sem jafnframt vaktar stöðvarnar og birtir niðurstöður.
Á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands er nú hægt að skoða bæði klukkustundar- og sólarhringsgildi fyrir brennisteinsvetni og brennisteinsdíoxíð í andrúmslofti auk veðurupplýsinga en veðurstöðvar eru tengdar báðum mælistöðvum. Getur hver sem aðgang hefur að netinu þannig fylgst með magni þessara efna í andrúmslofti auk upplýsinga um vindátt, vindhraða, hitastig, loftþrýsting ofl.
Slóðin á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands er
www.heilbrigdiseftirlitid.is. Á vef Orkuveitunnar er einnig að finna
upplýsingar um loftgæðamælingar.