Lesa frétt

OR býður grunnskólabörnum á Akranesi og í Borgarbyggð á Bláa gullið

4.2.2010 Í tilefni af 100 ára afmæli Vatnsveitu Reykjavíkur og 10 ára afmælis Orkuveitunnar á síðasta ári hefur Orkuveita Reykjavíkur (OR) ákveðið að bjóða öllum 4. og 5. bekkjar nemendum  á Akranesi og í Borgarbyggð á leiksýninguna Bláa Gullið sem fjallar um margbreytileika vatnsins. Leikfélagið Opið út setur upp sýninguna í samvinnu við Borgarleikhúsið  og var hún frumsýnd á Litla sviði leikhússins 10. október sl. í leikstjórn Charlottu Böving.

Leiksýningarnar verða dagana 15. og 16. febrúar og munu um 330 börn koma frá þessum stöðum í Borgarleikhúsið á Bláa gullið í boði OR. Viðbrögð í skólunum hafa verið mjög góð og hefur boðið mætt miklu þakklæti þar sem skólarnir hafa þurft að draga úr ferðum skólabarna vegna sparnaðar.

Um sýninguna
Bláa gullið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu 10. október sl. Sýningin hefur það að markmiði að áhorfendur sjái vatn í nýju ljósi; upplifi margbreytileika, mikilvægi og töfra bláa gullsins. Þrír trúðar leiða áhorfendur um sögusvið vatnsins sem hefur verið á stöðugu ferðalagi um jörðina í árþúsundir; undir og á yfirborði hennar, í öllu lífverum og um himingeiminn. Trúðarnir varpa fram ýmsum spurningum um eðli og uppruna vatnsins á fræðandi en trúðslegan hátt! Ragnhildur Gísladóttir sér um hljóðmynd og Gjörningaklúbburinn sér um leikmynd og búninga.


Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, og Charlotta Böving skrifuðu undir samstarfssamning Orkuveitu Reykjavíkur og Borgarleikhússins um sýningar fyrir skólabörn, ásamt trúðunum í Bláa gullinu.