Lesa frétt

Hitaveita gegn orkufátækt - hagkvæmni CO2 bindingar

2.2.2010

Á föstudag útskrifaðist fyrsti nemendahópurinn frá alþjóðlega orkuskólanum REYST, sem rekinn er af Orkuveitu Reykjavíkur, Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Það voru níu nemendur frá fimm löndum sem luku meistaraprófi á sviði sjálfbærrar orku, ýmist á vettvangi verkfræði, jarðfræði eða viðskipta.

Þetta var í fyrsta sinn að háskólarnir tveir útskrifuðu nemendur sameiginlega.

Útskriftarathöfnin fór fram í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur að viðstöddum fjölda fólks, þar á meðal aðstandendum meistaranna og voru margir þeirra langt að komnir.

Útskriftarhópurinn hóf nám síðsumars árið 2008 og fjórir nemendur úr þessum fyrsta árgangi REYST- nema munu ljúka námi í vor, tveir Íslendingar, einn frá Fílabeinsströndinni og einn frá Filippseyjum.

Lokaverkefni meistaranemanna eru afar fjölbreytt og spanna sviðið allt frá rannsókn á kostum hitaveitna til að berjast gegn orkufátækt í Bretlandi til hagkvæmni vísindaverkefnisins, sem unnið er að við Hellisheiðarvirkjun og felst í að binda koltvísýring sem steind í bergi. Í töflunni hér að neðan er yfirlit yfir útskriftanema dagsins og verkefni þeirra.

Árni Vignir Pálmason

Íslandi

Wind power pumped storage system for hydropower plants.

Elísabet V. Ragnheiðardóttir

Íslandi

Costs, Profitability and Potential Gains of the CarbFix Program.

Houssein Osman Guelleh

Djibouti

Automation of a geothermal power plant in Djibouti-type of suitable control equipment and degree of automation for Djibouti.

Indra Budi Suryata

Indónesíu

Carbon Footprint Assessment and Its Reduction Efforts: The Case of Blue Lagoon Company.

Ingrid Michelle Austin

Skotlandi

Potential for District Heating as a solution to Fuel Poverty in the UK.

Jón Örn Jónsson

Íslandi

A Commercial Feasibility Study of Renewable Methanol Production from Biomass Gasification in Iceland.

Martin Fleer

Þýskalandi

Heat recovery from the exhaust gas of aluminum reduction cells.

Rifqa Agung Wicaksono

Indónesíu

Comparison of conductive and seismic properties in a geothermal area with emphasis on application of MT.

Rut Bjarnadóttir

Íslandi

Sustainability evaluation of geothermal systems in Iceland. Indicators for sustainable production.