Lesa frétt

Grænar byggingar í sókn

27.1.2010

Orkuveita Reykjavíkur tekur um þessar mundir þátt í að undirbúa stofnun Vistvænnar byggðar – Vettvangs um sjálfbæra þróun í mannvirkjagerð. Undirbúningshópur kom saman þegar fulltrúar BREEAM komu hingað til lands s.l. vor og er skipaður fulltrúum verkfræðistofa, arkitektastofa, verktaka og opinberra aðila. Hópurinn hefur hist reglulega síðan s.l. sumar til að móta ramma utan um starfsemi Vistvænnar byggðar og móta framtíðarsýn fyrir félagið.
 
Tilgangur Vistvænnar byggðar  er að vera leiðandi vettvangur á sviði sjálfbærrar þróunar við skipulag,  hönnun, byggingu, rekstur og viðhald mannvirkja á Íslandi. Markmiðið er að hvetja til stöðugra umbóta í anda sjálfbærrar þróunar í mannvirkjagerð og skipulagi og stuðla þannig að því að þjóðin geti til framtíðar búið við heilbrigð og góð lífsskilyrði í vistvænni byggð.

Hvaða kerfi nýtast best?

Meðal helstu verkefna Vistvænnar byggðar verður að taka afstöðu til þeirra matskerfa fyrir byggingar sem notuð eru um allan heim. Bæði hér á landi og á Norðurlöndunum standa fagmenn frammi fyrir þeim spurningum sem innreið LEED og BREEAM kerfanna hefur lagt fyrir byggingariðnaðinn. Þessi kerfi eru sett fram til þess að meta og bæta frammistöðu bygginga með tilliti til umhverfismála. En hvaða kerfi henta hvar? Hvaða viðmið eru æskileg? Hlutverk Vistvænnar byggðar verður að leiða þessa umræðu hér á landi og taka þátt í henni utan landsteinanna.

Öll fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög geta verið með í Vistvænni byggð. Þar skapast vettvangur til að efla tengsl við þá sem kljást við svipaðar spurningar og þá sem vilja skapa vistvæna byggð á Íslandi. Vistvænni byggð er ætlað að vera vettvangur fyrir fagfólk, fræðafólk og atvinnurekendur til að koma saman og leiða umræðuna.

Kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 23. febrúar kl. 15:00 í húsi Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1. Stofnfundurinn verður haldinn í kjölfarið, kl. 16:00. Frekari upplýsingar veitir Jón Sigurðsson, jon.sigurdsson (hja) or.is

Hús íslenskra fræða (Árnastofnun) er í sérstöku hönnunarferli vistvænna bygginga.