Lesa frétt

Styrkir úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði

23.2.2010 Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Umhverfis- og orkurannsóknasjóði OR, sem hefur 50 milljónir til ráðstöfunar 2010.

Hlutverk Umhverfis- og orkurannsóknasjóðs OR er að efla rannsóknir, þróun og nýsköpun á sviði umhverfis- og orkumála, þar með taldar þverfaglegar rannsóknir. Markmiðið er að veita styrki til háskóla- og nýsköpunarrannsókna á sviði umhverfis- og orkumála og treysta samstarf Orkuveitunnar við
sérfræðinga og vísindamenn sem stunda rannsóknir á sviðinu. Sjóðurinn veitir styrki til verkefna í umhverfis- og orkurannsóknum sem varða:

  • Hagnýtar framfarir í kjarnastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur, uppbyggingu og rekstri vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu, fráveitu eða gagnaveitu
  • Tengsl starfsemi OR við umhverfi, samfélag og efnahag
  • Aukna hagnýtingu endurnýjanlegra orkugjafa

Allar nánari upplýsingar um sjóðinn, s.s. úthlutunarreglur og tilhögun umsókna eru á vef sjóðsins.

Umsóknum skal skilað í síðasta lagi 1. mars 2010.