Lesa frétt

OR gengur til viðræðna við Magma Energy

17.8.2009 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Magma Energy um kaup þess á hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Eignarhlutinn hefur verið í opinberu söluferli frá því í vor. Sýndi fjöldi aðila hlutnum áhuga og fór stjórn Orkuveitunnar yfir tilboð í dag. Var ákveðið að ganga til viðræðna við Magma Energy, sem nýverið eignaðist 11% hlut í HS Orku.
Orkuveita Reykjavíkur keypti 16,58% hlut í Hitaveitu Suðurnesja árið 2007 og skuldbatt sig jafnframt til að kaupa liðlega 15% til viðbótar af Hafnarfjarðarbæ. Við uppskiptingu Hitaveitu Suðurnesja í HS Veitur og HS Orku eignuðust aðilar samsvarandi hlut á báðum félögum. Nær tilboð Magma til samanlagðs hlutar í HS Orku, það er orkuframleiðsluhluta fyrirtækisins.
Samkeppnisyfirvöld settu skorður við eignarhlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku og hefur Orkuveitan unnið að sölunni innan tiltekins frests samkeppnisyfirvalda. Samhliða viðræðum við Magma mun Orkuveitan leitast við að ná samkomulagi við Hafnarfjarðarbæ um sölu á hlut bæjarins í HS Orku.