Lesa frétt
Rannsókn á gróðurskemmdum að hefjast
12.9.2008
Á næstu dögum hefst söfnun plöntusýna í framhaldi af ábendingum um mosaskemmdir á Hellisheiði. Markmiðið er að leiða í ljós orsakir skemmdanna. Skyndikönnun á mosagróðri í allt upp í 25 km. fjarlægð frá Hellisheiðarvirkjun leiddi í ljós svipaðar gróðurskemmdir og þær sem Náttúrufræðistofnun benti á í næsta nágrenni hennar.

Vísindamenn og annað starfsfólk hjá Orkuveitunni hefur fundað með sérfræðingum vísindamönnum um umfang væntanlegra rannsókna og er rannsóknaráætlun í smíðum. Plöntusöfnun hefst þó þegar í stað, enda mikilvægt að ná sýnum sem fyrst, áður en efnabreytingar í plöntunum tengdar árstíðaskiptum eiga sér stað.
Skyndikönnun á mosabreiðum á heiðunum austan Reykjavíkur leiddi í ljós að víða er að finna skemmdir á mosanum. Þannig sáust umfangsmiklar skemmdir við Bláfjallaveg, vestan Vífilsfells, í um 4 km. fjarlægð frá jarðgufuvirkjun Orkuveitunnar við Kolviðarhól, í Húsfellsbruna á Bláfjallasvæðinu, sem er í um 12 km. fjarlægð og sömu sögu var að segja af mosabreiðum á svæðinu milli Lönguhlíðar og Helgafells, ofan Hafnarfjarðar. Alls staðar gaf að líta talsverðar skemmdir á mosa, svo sem myndirnar hér að neðan bera með sér.
Tilgáta var uppi um að gróðurskemmdir við Hellisheiðarvirkjun mætti rekja til starfsemi virkjunarinnar. Sambandið þar á milli verður kannað m.a. með efnagreiningu. Einnig verður kannað samhengið á milli mosaskemmdanna við virkjunina og þeirra skemmda sem fundist hafa þar sem öruggt er talið að áhrifa jarðgufunnar gætir ekki. Þá verður mosi í grennd við aðrar jarðgufuvirkjanir kannaður með tilliti til þess sama.
Að rannsóknaráætluninni frágenginni, skýrist hvenær niðurstaðna úr rannsóknunum er að vænta.

Vestan Hellisheiðarvirkjunar
- Mynd Sigurður H. Magnússon

Vestan Hellisheiðarvirkjunar - Mynd Sigurður H. Magnússon

Séð frá Bláfjallavegi 4 km frá Hellisheiðarvirkjun - Hæð yfir sjó um 200 m

Fjarlægð frá Hellisheiðavirkjun 4 km - m.y.s. um 200 m

Séð frá vegi er liggur út frá Bláfjallavegi í átt að Hafnarfirði. Fjarlægð frá Hellisheiðarvirkjun 12 km - m.y.s. um 400 m