Nánar
Hæstbjóðandi í Perluna kannar hagkvæmni
19.12.2011
Orkuveita Reykjavíkur hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um sölu á Perlunni við þá aðila sem áttu hæsta tilboð í eignina. Með henni fá bjóðendur frest til 31. mars næstkomandi til að aflétta fyrirvörum í tilboði sínu. Fyrirvararnir miðast við að treysta forsendur hagkvæmniathugunar, sem liggur til grundvallar tilboðinu.
Sex tilboð bárust í Perluna, en eignin var auglýst til sölu nú á haustdögum. Öll voru tilboðin háð einhverjum fyrirvörum en hið hæsta nemur 1.688,8 milljónum króna. Ekki verður ráðist í viðræður við aðra bjóðendur meðan viljayfirlýsingin við hæstbjóðendur er í gildi.
Perlan er byggð ofan á sex hitaveitutanka á Öskuhlíð sem ekki eru seldir og munu áfram þjóna hitaveitunni í Reykjavík.

Perlan var
auglýst til sölu í byrjun september og rann tilboðsfrestur út 18. október. Hún er ein þeirra eigna sem stjórn OR samþykkti að selja í janúar síðastliðnum. Þá voru einnig settar reglur um söluferli eigna og ákveðið að gefa eigendum fyrirtækisins kost á að kaupa tilteknar eignir áður en þær færu í almenna sölu. Borgarráð Reykjavíkur ákvað samhljóða á fundi 23. júní sl. að gera ekki athugasemdir við að Perlan færi í almenna sölu. Í framhaldinu leitaði OR tilboða í umsjón með sölu stærri eigna og sér Fasteignasalan Miklaborg um söluna.
Sala Perlunnar er hluti
aðgerðaáætlunar Orkuveitu Reykjavíkur og eigenda fyrirtækisins sem samþykkt var í vor. Samkvæmt henni mun fyrirtækið afla fjár með sölu á eignum utan kjarnastarfsemi að fjárhæð 10 milljarða króna á árabilinu 2011 til og með 2016. Eignasalan, eins og aðrar aðgerðir, eru
á áætlun.

Nú um helgina var hluti höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1 auglýstur til leigu eða sölu. Það er austurbyggingin - sú til hægri á myndinni - sem auglýst er.
Miklaborg hefur umsjón með sölunni.