Eigendanefnd

Samþykkt eigendastefna Orkuveita Reykjavíkur

Eigendanefnd Orkuveitu Reykjavíkur er sameiginlegur vettvangur þeirra sveitarfélaga sem standa að fyrirtækinu og hefur það hlutverk að móta fyrirtækinu eigendastefnu.

Ábendingar og fyrirspurnir berist á þetta netfang

Verkefni eigendanefndar:

  • Mótun tillagna að eigendastefnu á grundvelli tillagna stjórnar OR, sem lagðar eru fyrir viðkomandi sveitarstjórnir.
  • Mótun tillagna að uppskiptingu fyrirtækisins, á grundvelli tillagna fyrri eigendanefndar, auk umfjöllunar um hlutverk sveitarstjórna sem eigenda auðlinda og hinna uppskiptu fyrirtækja, auk verka- og ábyrgðarskiptingar milli stjórna fyrirtækjanna og helstu stjórnenda þeirra.
  • Mótun tillagna að breytingum á lögum, reglugerð, sameignarsamningi og samþykktum, eftir því sem ofangreint krefur, sem lagðar eru fyrir viðkomandi sveitarstjórnir.

Drög að eigendastefnu
Fundargögn og fundargerðir
Ýmis skjöl
Tenglar á opinber gögn