Um OR

Orkuveita Reykjavíkur er veitu- og þjónustufyrirtæki í eigu þriggja sveitarfélaga; Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar. Fyrirtækið framleiðir, dreifir og selur heitt vatn og kalt, rafmagn og annast uppbyggingu og rekstur fráveitu og gagnaveitu. Starfssvæði Orkuveitu Reykjavíkur nær til Suður- og Vesturlands auk höfuðborgarsvæðisins.
Gildi Orkuveitunnar
Gildi Orkuveitunnar eru þrjú og þau eiga að einkenna alla vinnu innan fyrirtækisins.
Framsýni - snýr einkum að hluterki Orkuveitunnar, þar sem veiturekstur er í eðli sínu viðfangsefni til afar langs tíma og þarfir íbúanna fyrir þjónustu veitufyrirtækja úreldast ekki.
Hagsýni - er boðorð hagskvæms reksturs frá degi til dags þannig að viðskiptavinir fái skilgreinda þjónustu á sanngjörnu verði.
Heiðarleiki - snýr að því hvernig starfsfólk kemur fram við viðskiptavini og hvert við annað, hvernig það starfar og tryggir gegnsæi í rekstrinum.
Opnunartími símaþjónustu
- Þjónustuver
- Sími 516 6000 - Opið 08:00-17:00 virka daga
- Grænt númer: 800 1010
- Fax: 516 6709
- Skiptiborð
- Sími 516 6000 – Opið 08:00-17:00 virka daga
- Bilanavakt
- Sími 516-6200 - Opið allan sólarhringinn
Opnunartími afgreiðslustaða
- Bæjarhálsi 1, Reykjavík - Opið virka daga kl. 08:00-16:00
- Dalbraut 8, Akranesi - Opið virka daga kl. 09:00-13:00
- Sólbakka 15, Borgarnesi - Opið miðvikudaga kl. 09:00-15:00
- Bláskógum 10, Hveragerði - Opið miðvikudaga kl: 09:00-15:00
- Selvogsbraut 2, Þorlákshöfn - Opið virka daga (nema miðvikudaga) kl. 09:00-13:00