Heimlagnir

Heimili

Verðskrá gildir frá 01.01.2012

Almennt verð heimlagna gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verðin gilda ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Reiknist áætlaður heildarkostnaður við heimlögnina meira en 50% hærri en verðskrá segir til um þá greiðir umsækjandi til viðbótar allan kostnað sem verður umfram þessi 50%. Viðbótarkostnaður samkvæmt þessari reiknireglu er ekki innheimtur samhliða innheimtu yfirlengdargjalda. Geri húseigandi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitafélags t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna. Húseigandi sem óskar eftir breytingu eða færslu á inntaksbúnaði eða inntaksstað ber af því allan kostnað. Sama gildir um tímabundna aftengingu.

Rafmagnsheimtaugar

Tegund Málstraumur Heimtaugagjald Samtals m.25.5% vsk.
H1R       16 A 138.880 174.294
H1R 50 A 162.400 203.812
H1R 63 A 204.624 256.803
H1R 100 A 324.800 407.624
H1R 200 A 649.600 815.248
H1R 315 A 1.023.120 1.284.016
H1R 400 A 1.299.200 1.630.496
H1R 630 A 2.046.240 2.568.031
H1R 710 A 2.306.080 2.894.130

Skýringar
Málstærð heimtaugar miðast við stærð stofnvara húsveitu.

Bráðabirgðaheimtaugar

 

Tegund
Málstraumur Stofngjald Með 25,5% vsk
H2R 50 A 50.400 63.252
H2R 63 A 53.760 67.469
H2R 100 A 61.600 77.308
H2R 200 A 117.600 147.588

Skýringar

Þessi verð gilda þegar heimtaugastrengur af fullnægjandi stærð er kominn inn fyrir lóðarmörk.  Í öðrum tilvikum og fyrir hærri málstraum greiðist allur raunkostnaður við bráðabirgðaheimtaugina.

Frístundahúsaheimtaugar rafmagns

 

 

Málstærð

Heimtaugagjald

Samtals m.25.5% vsk.

H3R

35 A

447.483

561.591

Skýringar

Umsækjandi leggur til ídráttarrör að lóðarmörkum. Fyrir hvern metra umfram 150 m af heildarlengd greiðir umsækjandi 2% af heimtaugargjaldi.

Tengigjald vegna skammtímanotkunar

 

Tegund kr. Samtals m.25.5% vsk.
Tengigjald 14.560 18.273

Skýringar
Greitt er fyrir hverja tengingu og aftengingu.
Álag vegna tengingar eða aftengingar utan dagvinnutíma er 55%.
Þessi þjónusta er háð staðsetningu og aðstæðum í dreifikerfinu.
 

 

Önnur tengiþjónusta

Umbeðin tengiþjónusta rafmagnseftirlitsmanns til rafverktaka utan dagvinnutíma á tímabilinu kl. 16:15 til 00:00 virka daga er kr. 27.216 (kr. 34.156 m/vsk) og eftir miðnætti og um helgar kr. 36.288 (kr. 45.541 m/vsk). Framangreind gjöld miðast við að hámarki 3ja tima útkall. Þurfi jafnframt þjónustu fleiri starfsmanna Orkuveitunnar utan dagvinnutíma greiðist sá kostnaður til viðbótar.

Heitt vatn - Heimæðagjöld

Neðangreind verð gilda í þéttbýli þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 50 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Sama gildir um hvern metra sem lengd heimæðar fer yfir 20 m innan lóðarmarka. Stærð heimæðar ákvarðast af tilgreindu vatnsmagni í umsókn en stærð heimæðar til upphitunar húsnæðis tekur mið af rúmmáli þess. Virðisaukaskattur reiknast 7% á heimæðargjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 25,5% á heimæðargjöld til annarra nota.


Taxti Málstærð  kr. m. 7% vsk m. 25,5% vsk
H1H 20 mm 273.780

292.945

343.594
H1H 25 mm 427.781 457.726 536.865
H1H 32 mm 700.877 749.938 879.600
H1H 40 mm 1.095.120 1.171.778 1.374.376
H1H 50 mm 1.711.125 1.830.904 2.147.462

Skýringar

Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 50 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert.


Heitt vatn - Vinnuskúratengingar

Taxti  Málstærð   án vsk kr. m. 7% vsk   m. 25,5% vsk
 H2H  20 mm  82.134  87.883  103.078

Skýringar

Verðið gildir fyrir tengingu við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk ásamt einni tengigrind. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu er hún gjaldfærð í samræmi við raunkostnað.


Heitavatnsheimæðar utan þéttbýlis 

Neðangreind verð gilda í frístundabyggðum þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 100 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Sama gildir um hvern metra sem lengd heimæðar fer yfir 50 m innan lóðarmarka. Virðisaukaskattur reiknast 7% á heimæðargjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 25,5% á heimæðargjöld til annarra nota.

Tegund Málstærð Jaðarveitur
án vsk kr. m. 7% vsk m. 25,5% vsk
Heimæð lögð stök frá stofn- eða götuæð 15 mm 515.970 552.088 647.542
Heimæð lögð samtímis og í sama skurði og kaldavatnsæð OR 15 mm 363.285 388.715 455.923

Skýringar

Heitavatnsheimæðar fyrir frístundahús eru 15 mm.  Ósk um stærri heimæð fellur undir mat Orkuveitunnar á styrk dreifikerfis og verði ósk samþykkt greiðir umsækjandi allan viðbótarkostnað sem fylgir stærri heimæð og þ.m.t. styrkingu á aðveitu.


Kalt vatn - Heimæðagjöld

Neðangreind verð gilda í þéttbýli og miðast við að umsækjandi hafi lagt ídráttarrör á frostfríu dýpi frá tengistað OR við lóðarmörk að inntaksstað í húsi. Stærð heimæðar tekur mið af tilgreindu vatnsmagni í umsókn en stærð heimæðar fyrir íbúðarhúsnæði tekur mið af fjölda íbúða (töppunarstaða). Heimæðargjöld bera ekki virðisaukaskatt og verðið er uppfært á þriggja mánaða fresti miðað við byggingarvísitölu.

Taxti Nafnmál
Tommumál
Stærð Kr.
H1K 1" 32 mm 239.475
H1K 1 1/4" 40 mm 342.229
H1K 1 1/2" 50 mm 489.071
H1K 2" 63 mm 707.889
H1K 2 1/2" 75 mm 935.660
H1K 3" 90 mm 1.252.588
H1K 4" 110 mm 1.726.828

Skýringar

Ein tengigrind er innifalin í hverju tengigjaldi, fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Stærri heimæðar en 110 mm (4") eru gjaldfærðar í samræmi við raunkostnað, miðað er við sömu uppfærslureglu eftir stærðum og í töflunni og til viðbótar er tekið mið af flutningsgetu götu- eða stofnæðar sem aðliggjandi er.

Kaldavatnsheimæðar fyrir frístundahús

Staðsetning Málstærð Verð kr.
Heimæð lögð stök frá stofn- eða götuæð

25 mm

612.611
Heimæð lögð í sama skurð og samtímis heitavatnsheimæð OR

25 mm

439.966

Skýringar

Þessi verð miðast við heimæð allt að 100 metrum að lengd. Lengri heimæð en 100 m eða stærri heimæð kostnaðarreiknast og gjaldfærist í samræmi við raunkostnað. Umsækjandi greiðir aukakostnað vegna klapparbrots.