Boðgreiðslur
Óþarfa gluggapóstur finnur sér leið inn á of mörg heimili í dag. Á tímum rafrænna greiðslna og vefvæðingar ætti gluggapóstur fyrir löngu að vera leifar gamals tíma, sóunar og óskynsemi. Svo ekki sé minnst á umhverfisspjöllin.
Boðgreiðslur þýða enginn gluggapóstur, enginn pappír og lægri þjónustugjöld, auk þess spara þær þér sporin. Reikningurinn verður aðgengilegur á rafrænu yfirliti í heimabankanum þínum.
Nauðsynlegt er að sama kennitala sé skráð fyrir heimabankanum og orkureikningnum. Hér getur þú sótt um að greiða orkureikninginn með boðgreiðslum. Umsókn um boðgreiðslur er á öruggu svæði.
Smellið hér til að fylla út formið á öruggu/dulkóðaðu svæði