Umsóknareyðublöð
Með allar upplýsingar er farið sem trúnaðarmál.
Boðgreiðslur
Með boðgreiðslum er hægt að spara sér sporin og greiða föst gjöld með sjálfvirkum, reglubundnum og fyrirhafnarlausum hætti. Hér er hægt að sækja um að greiða orkureikninginn með boðgreiðslum.
Netgreiðslur
Með netgreiðslum greiðir þú lægri þjónustugjöld og hentar þetta vel fyrir þá viðskiptavini sem greiða alla sína reikninga í heimabankanum. Reikningurinn er aðgengilegur á rafrænu yfirliti í heimabankanum og krafan birtist með öðrum ógreiddum kröfum. Hér er hægt að sækja um að greiða orkureikninginn með netgreiðslum.
Álestrar
Notendur geta sjálfir lesið á mæla fyrir heitt og kalt vatn sem og rafmagn og sent Orkuveitunni, t.d. í tengslum við flutninga. Álestrar eru skráðir inn á viðskiptavinavef OR, www.orkanmin.is. Athugið að skrá þarf upplýsingar fyrir hvern mæli sem lesið er á. Smellið hér til að fara inn á Orkuna mína. Ef þú hefur ekki fengið aðgangsorð eða gleymt lykilorði, hringdu þá í þjónustuver okkar í síma 516 6000 og við aðstoðum þig.
Notendaskipti
Ef breytingar verða á heimilishögum, til dæmis við flutninga, þarf að skrá nýjan notanda að hita og rafmagni og senda Orkuveitunni. Athugið að skrá flutningstilkynningu fyrir alla mæla sem um er að ræða. Notandi getur flýtt fyrir sér með því að nota "back"-takkann á vefráparanum til að kalla aftur fram útfyllt eyðublað, breytt upplýsingum og ýtt aftur á "senda".
Smellið hér til að fylla út rafrænt eyðublað og tilkynna um notendaskipti.