Tæknilegar upplýsingar

Hvað er aðaltafla?

Til að taka á móti raforku þarf rafmagnstöflu sem nefnist aðaltafla. Aðaltaflan er hjarta rafkerfis hússins. Aðaltaflan er oft eina taflan í minni einbýlis- og raðhúsum. Í stærri húsum eru oftast einnig undirtöflur sem kallast greinitöflur og fá tengingu frá aðaltöflu.

Hver rafmagnsheimtaug frá Orkuveitunni verður að tengjast einni aðaltöflu. Krafa Orkuveitunnar um búnað í aðaltöflu er aðalvarrofi (í eldri töflum geta aðalvar og aðalrofi verið í tvennu lagi) og aðstaða fyrir orkumæli eða orkumæla sé um fleiri notendur að ræða. Taflan sjálf og búnaður í henni þarf að uppfylla ákvæði reglugerða um raforkuvirki.

Heimtaugastrengur eða stofnlögn

Aðalvarrofinn hefur bræðivör í samræmi við stærð heimtaugarinnar en sé um aflrofa að ræða er stilling yfirálagsvarnar sú sama. Heimtaugastrengur eða stofnlögn (ef heimtaug tengist stofntengiboxi eða stofnvarkassa) tengist inn á aðalvarrofann. Í aðaltöflunni er einnig annar rafbúnaður eins og greinivör og/eða kvíslvör og lekastraumsrofi. Gerðar eru ákveðnar kröfur um staðsetningu aðaltöflu svo og annarra tafla sem innihalda orkumæla, aðbúnað og pláss fyrir hvern mæli, minnstu og mestu hæð mælis frá gólfi og gildleika og lit tauga sem tengjast mæli.

 
Tæknilegir tengiskilmálar rafveitna 

 

Hvað er kílówattstund (kwst)?

Kílówattstund er mælieining fyrir orku. Orka er margfeldi af afli og tíma. Aflið er mælt í kílówöttum (1000 Wött er 1 kílówatt) Tíminn er mældur í klukkustundum.
Afl tækja er skráð á kenniskjöld tækis, eða merkiplötu þess. Þar er aflið gefið upp í kílówöttum (kW) eða í wöttum (W). Ef afl er gefið upp í wöttum þarf að deila með 1000 til að finna hversu mörg kílówött tækið tekur. Athugið að rugla kílówöttum ekki saman við kílówattstundir. Kílówattstundir verða fyrst til þegar tækið er í gangi í einhvern tíma. Til að finna hversu mikla orku tækið tekur þarf að margfalda afl þess í kílówöttum með þeim klukkustundum sem það er í gangi.