Vatn og vellíðan

Vatn er undirstaða lífs á jörðinni. 97% af öllu vatni í heiminum er í úthöfum. Vatn úr úthöfum er saltað og því óhæft til neyslu. Eftir sitja 3% af ferskvatni, en tveir þriðju hlutar af því eru í föstu formi. Þar af leiðandi er einungis 1% af vatni á jörðinni ferskvatn aðgengilegt mönnum og dýrum til neyslu. 


Ómengað vatn

Íslendingar njóta þeirra forréttinda að geta neytt ómengaðs vatns nær takmarkalaust. Ekki eru allir íbúar á jarðkringlunni jafn heppnir, því minnkandi aðgangur að hreinu drykkjarvatni er vaxandi vandamál og hrjáir sífellt fleiri svæði á jörðinni. Árið 2000 hafði rúmlega einn milljarður manna í heiminum ekki aðgang að hreinu drykkjarbóli, sem samsvarar 18% af fólksfjölda heimsins. Í Evrópu einni eru 120 milljónir íbúa án aðgangs að hreinu drykkjarvatni skv. Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.

Vatnið og mannslíkaminn