Spurt og svarað
Hvar innheimtir Orkuveita Reykjavíkur vatns- og fráveitugjöld?
Á öllum stöðum þar sem Orkuveitan starfrækir vatnsveitu og/eða fráveitu sér Orkuveitan sjálf um innheimtu. Þetta eru Reykjavík, Akranes, Borgarbyggð, Álftanes, Stykkishólmur(vatnsveita), Grundarfjörður (vatnsveita), Úthlíð (vatnsveita) og Hvalfjarðarsveit (vatnsveita).
Af hverju er Orkuveita Reykjavíkur að innheimta vatns og fráveitugjöldin en ekki sveitarfélögin með fasteignagjöldum eins og áður var?
Vatns- og fráveita eru hluti af grunnþjónustu OR. Sveitarfélögin hafa hins vegar innheimt rekstrargjöldin af neytendum og Orkuveitan hefur síðan fengið greiðslu frá þeim. Markmið með þessum breytingum er að einfalda boðleiðir, innheimta gjöldin beint af neytendum þannig að samskiptin verði milliliðalaus milli neytenda og rekstraraðila og þar með skilvirkari.
Hvað er vatnsgjaldið hátt?
Gjaldið er mismunandi fyrir fyrirtæki og heimili og eftir svæðum. Sjá
verðskrá heimila og
verðskrá fyrirtækja.
Hvað er fráveitugjaldið hátt?
Gjaldið er mismunandi fyrir fyrirtæki og heimili og eftir svæðum. Sjá
verðskrá heimila og
verðskrá fyrirtækja.
Hækka gjöldin frá síðasta ári?
Já, verðskrá hækkar um 10,69% sem byggist á hækkun byggingavísitölu á síðasta ári.
Hvar get ég séð hvað ég borgaði í fyrra?
Íbúar í Reykjavík, Borgarbyggð og Akranesi geta farið inn á
www.orkanmin.is, þjónustuvef OR og séð álagninguna frá því í fyrra.
Af hverju er fráveitugjaldið miðað við fermetra?
Það er sanngjarnara að greiðsla fyrir vatn á leið til notenda (neysluvatn og brunavarnir) og frá þeim (fráveita) sé í samhengi við stærð húsnæðis frekar en fasteignamat þess. Stærð húseigna ræður meiru um kostnað við þjónustuna en hvernig fasteignamarkaðurinn metur viðkomandi eign á hverjum tíma. Bæði gjöldin eru fremur lág og mæling á notkun borgar sig ekki nema hjá stærri notendum.
Í hvað fer vatnsgjaldið?
Samkvæmt lögum eiga gjöld vatnsveitna að standa undir rekstri hennar, þ.m.t. fjármagnskostnaði og fyrirhuguðum stofnkostnaði samkvæmt langtímaáætlun veitunnar.
Í hvað fer fráveitugjaldið?
Samkvæmt lögum (09/2009) eiga gjöld fráveitu að standa undir rekstri hennar, þ.m.t. fjármagnskostnaði og fyrirhuguðum stofnkostnaði samkvæmt langtímaáætlun veitunnar.