Innheimta vatns- og fráveitugjalda
Á síðasta ári hóf Orkuveita Reykjavíkur að innheimta beint vatns- og fráveitugjöld á þeim svæðum þar sem fyrirtækið rekur bæði vatnsveitu og fráveitu, þ.e. í Reykjavík, Borgarbyggð og á Akranesi. Þessi gjöld voru áður innheimt af sveitarfélögum með fasteignagjöldum.
Á árinu 2012 innheimtir OR nú einnig vatnsgjöld á þeim svæðum sem fyrirtækið rekur einungis vatnsveitu, þ.e. í Stykkishólmi, Grundarfirði, Úthlíð og Hvalfjarðarsveit.
Þetta þýðir að nú innheimtir Orkuveitan beint öll gjöld er varða starfsemi fyrirtækisins.
Spurt og svarað varðandi breytingu á innheimtu vatns- og fráveitugjalda
Senda athugasemd vegna innheimtu vatns- og fráveitugjalda
Lagnakerfi fráveitunnar er um 800 km langt og stærstu sjáanlegu mannvirkin í Reykjavík eru hreinsistöðvarnar tvær, sjö dælustöðvar og 6-7 minni stöðvar á víð og dreif í kerfinu. Orkuveita Reykjavíkur rekur einnig fráveitur á Akranesi og í Borgarbyggð.
Sjá nánar um fráveituna hér