Vistvænn kostur

Með hækkandi olíuverði spyr fólk sig í auknum mæli hvort ekki megi komast á milli staða á hagkvæmari hátt en á bensín eða díselbílum. Metanbílar njóta aukinna vinsælda á meðan rafmagnsbílanotkun eykst lítið. Ástæðan fyrir lítilli sölu á rafmagnsbílum er hátt verð. Ef horft er til framtíðar má ljóst vera að rafmagnsbílar eru einkar hagkvæmir á Íslandi þar sem orkan er umhverfisvæn og rafmagnið ódýrt. Aukin notkun rafmagnsbíla myndi stuðla að minni mengun og spara gjaldeyri sem annars færi í olíukaup.

 

 

Af hverju rafmagnsbíl?

Kostir þess að vera á rafknúnu ökutæki eru ótvíræðir. Þau menga ekkert, þ.e. engin koltvísiringsútblástur, sem er mikill kostur umfram önnur vistvæn ökutæki. Einfalt er að hlaða þau, þú stingur þeim einfaldlega í samband á kvöldin þegar heim er komið, eins og þú hleður símann þinn. Rafmagnsbílar þurfa minna viðhald þar sem hreifanlegir partar eru mun færri en í t.d. bensínbílum. Hægt er að skoða kostnað við rekstur bíla á síðu Orkusetursins.


 Lesa meira um rafmagnsbíla