Tenging við framtíðina

Orkuveitan hafði frumkvæði að opnun „Orkupósta“ á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu vorið 2008. Með Orkupóstunum gefst almenningi kostur á að hlaða rafmagnsökutæki sér að kostnaðarlausu. Tilgangurinn er að hvetja almenning til að velja sér vistvæn ökutæki og auka aðgengi að hleðslu fyrir rafmagnsökutæki. Staðsetning fyrstu Orkupóstanna var ákveðin út frá helstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins.

Orkupóstarnir eru í Bankastræti, Smáralind (4 stæði framan við Debenhams), Kringlunni (2. hæð neðri), höfuðstöðvum OR að Bæjarhálsi og við Arnarhvál.

Rafmagnsbílaeigendur geta nálgast lykla að Orkupóstinum í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1. Framvísa þarf skráningarskírteini rafmagnsbílsins.