Lýsing

  • Lýsið upp listaverk og bókahillur.
  • Notið hreyfiskynjara ef ljósið á að loga í stutta stund í einu.
  • Gætið þess vel að hafa ekki lampa nálægt gardínum eða öðru eldfimu efni og aldrei skal setja ábreiður yfir lampa.
  • Óhreinindi á lömpum getur dregið úr birtunni um allt að þriðjung.
  • Lýsing getur verið ódýr þjófavörn.

Hitun húsa

  • Hitanemi má ekki vera lokaður af með húsgögnum eða gluggatjöldum.
  • Of stórir sólbekkir draga úr jöfnu varmastreymi um herbergið og geta valdið því að ofnloki loki fyrir innrennsli til ofns.
  • Það er eðlilegt að ofnar séu kaldir ef mikið er af ókeypis varma í herberginu. Gluggatjöld hindra loftstreymi frá ofnum og geta gabbað    lofthitastýrðan ofnloka til að loka fyrir hitun áður en herbergishiti er nægur.
  • Hávaði í ofnlokum stafar af óstilltu hitakerfi.
  • Látið fagmann stilla hitakerfið.
  • Ójafnvægisstillt hitakerfi veldur sveiflum á herbergishita og ónákvæmni í hitastýringu.

 Sjá nánar um hollráð fyrir veturinn