Þægindi í sumarhúsið
Orkuveita Reykjavíkur hefur í mörg ár séð um rekstur allnokkurra hitaveitna í vinsælum sumarhúsabyggðum sunnan- og vestanlands og hefur mikið verið lagt upp úr því að kynna fyrir húseigendum kosti heita vatnsins. Margir líta á heita pottinn sem punktinn yfir iið þegar kemur að þægindum í sumarhúsinu enda nýtist heitur pottur allri fjölskyldunni.
Hitaveitukynntur eða rafmagns?
Þegar kemur að vali á heitum potti stendur það á milli hitaveitukyntra potta og rafmagnskyntra.
Helsti kosturinn við hitaveitukynta potta fyrir utan lágan rekstrarkostnað, er að vatnið er alltaf nýtt í pottinum sem er ólíkt rafmagnspottum þar sem sama vatnið er notað vikum og jafnvel mánuðum saman. Til að hægt sé að nota sama vatnið í svo langan tíma þarf að nota allskyns hreinsi- og sóttvarnarefni, viðhafa mælingar um ástand vatnsins og viðeigandi hreinsibúnaður verður að vera til staðar í pottinum. Helstu kostir rafmagnspotta er að þá er hægt að nota þar sem hitaveitu nýtur ekki við.
Kostnaður heitra potta
Lengi vel hefur þess misskilnings gætt það sé dýrara að reka hitaveitukyntan pott heldur en rafmagnskyntan en slíkt er ekki rétt. Ef potturinn er mikið notaður, opinn lengi í senn og oft í viku er væntanlega mun ódýrara að reka hitaveitukyntan pott sérstaklega ef einangrunin er góð.
Mjög mikilvægt er að fólk gæti að öryggi í umgengni á heitum pottum, bæði hvað varðar hitastigið á vatninu og að hafa ætíð lok á honum þegar hann er ekki í notkun.
Lesa meira um heita potta