Betri orkunýting á heimilinu
Rafmagn og heitt vatn eru sjálfsagðir hlutir á hverju heimili. Þessa orku getum við öll nýtt betur en við gerum, umhverfinu og hag heimilisins til heilla.
Nokkrar nytsamlegar ábendingar fyrir heimilið:
- Yfirfyllum ekki kæliskápa, hæfilega fullur ísskápur nýtir orkuna betur.
- Þvoum ekki þvott við hærri hita en nauðsynlegt er.
- Skolum matarleifar og notum styttra þvottakerfi eða lægri hita við notkun uppþvottvéla.
- Njótum þess að fara í bað. Það kostar kannski 10 krónur.
- Verum opin fyrir nýjum orkugjöfum á farskjóta okkar.
- Höfum ekki ljósin kveikt allan sólarhringinn
Nánar um betri orkunýtingu