Kostir spanhellna

Þegar kemur að vali á eldavél er margt sem þarf að skoða. Gott er að hafa nokkur atriði í huga; hellur þurfa að hitna jafnt og fljótt og þá er kostur að eldavélin sé sparneytin og auðvelt að þrífa hana.

Spanhellan hitnar á augabragði og tekur eldunin margfalt minni tíma en á gashellu og venjulegri keramikhellu, auk þess sem hitinn dreifist jafnt og því engin hætta á að kjötið verði missteikt eða brúnað. Hellan er þeim eiginleikum gædd að hitna ekki nema á hana sé settur pottur eða panna með stálbotni.

Ekkert heimsendingargjald

Þegar spaneldavélin er borin saman við gaseldavélar þá er að sjálfsögðu aðalkosturinn við spanvélina að ekki þarf að sækja raforkuna út í bæ, hún er send heim til neytandans, beint inn í eldhús, og er heimsendingargjaldið innifalið í verðinu. Ekki þarf heldur að fylgjast með rafmagnsbirgðum heimilisins eða óttast að verða uppiskroppa með rafmagnið þegar verst stendur á. Raforkan er ávallt til staðar, allan sólarhringinn árið um kring.


 Lesa meira um kosti spanhellna