Snjóbræðsla

Algengt er að frá dæmigerðu íslensku heimili renni á hverjum sólarhring 2.000 lítrar af 25-35° heitu vatni. Þrátt fyrir að vatnið hafi tapað miklu af varma sínum við að hita upp heimilið er það kjörið til að hita upp innkeyrsluna og stéttina við húsið.

Snjóbræðsla hefur marga kosti:
  • Aðkoma og umgengni verður vistlegri og þægilegri
  • Slysahætta minnkar
  • Snjómokstur verður óþarfur
  • Verðgildi eignarinnar eykst
  • Orkan nýtist betur

Ágæt þumalputtaregla er að fyrir hverja 100 fermetra húsnæðis fellur til heitt vatn sem nægir til að anna 16 fermetra snjóbræðslu. Slíkt kerfi sem byggir eingöngu á affallsvatni er einfalt í uppsetningu og rekstri. Þeir sem vilja hita upp stærri plön eiga kost á að fá viðbótar heitt vatn inn á snjóbræðslukerfið með svokallaðri innspýtingu.


 Lesa meira um snjóbræðslu