Nokkur hollráð um raforkunotkun

Brunahætta getur stafað af ógætilegri meðferð rafmagnstækja. Vartappar eru enn í eldri húsum. Gætið þess að eiga tappa: 10 amper fyrir ljós, 16-25 amper fyrir stærri tæki og 35 amper fyrir kvíslar. Gamlar raflagnir eru víða undir meira álagi en þær ráða við og margar úr sér gengnar. Látið fagmann kanna ástand raflagna og bæta úr ef þörf krefur. Gangið tryggilega frá öllum rafmagnstækjum áður en farið er að heiman.

Slysahætta getur stafað af lélegum tækjum og trosnuðum framlengingarsnúrum, sem geta verið sérstaklega hættulegar börnum. Varist því ofnotkun á lausum snúrum. Gætið þess að þær verði ekki fyrir hnjaski og liggi ekki þar sem börn ná til. Lekastraumsrofinn slær út við bilun í lögn eða tækjum. Reynið að finna bilunina með því að rjúfa fyrst allar greinar og taka öll tæki úr sambandi. Setjið síðan rofann inn, þá greinarnar hverja af annarri og að lokum hvert tæki fyrir sig, í samband aftur. Hafið samband við rafverktaka ef þörf er á viðgerð.


 Lesa meira um raforkunotkun