Lýsing
- Lýsið upp listaverk og bókahillur.
- Notið hreyfiskynjara ef ljósið á að loga í stutta stund í einu.
- Gætið þess vel að hafa ekki lampa nálægt gardínum eða öðru eldfimu efni og aldrei skal setja ábreiður yfir lampa.
- Óhreinindi á lömpum getur dregið úr birtunni um allt að þriðjung.
- Lýsing getur verið ódýr þjófavörn.
Hitun húsa
- Hitanemi má ekki vera lokaður af með húsgögnum eða gluggatjöldum.
- Of stórir sólbekkir draga úr jöfnu varmastreymi um herbergið og geta valdið því að ofnloki loki fyrir innrennsli til ofns.
- Það er eðlilegt að ofnar séu kaldir ef mikið er af ókeypis varma í herberginu. Gluggatjöld hindra loftstreymi frá ofnum og geta gabbað lofthitastýrðan ofnloka til að loka fyrir hitun áður en herbergishiti er nægur.
- Hávaði í ofnlokum stafar af óstilltu hitakerfi.
- Látið fagmann stilla hitakerfið.
- Ójafnvægisstillt hitakerfi veldur sveiflum á herbergishita og ónákvæmni í hitastýringu.
Sjá nánar um hollráð fyrir veturinn