Stillum hitann

Orkuveita Reykjavíkur í samstarfi við Sjóvá-Forvarnarhús og Landspítala Háskólasjúkrahús hleypti af stokkunum herferð vorið 2007, til að fækka brunaslysum af völdum heita vatnsins.   Allt of mörg brunaslys má rekja til heits neysluvatns. 
Yfirskriftin var Stillum hitann hóflega og var í tilefni átaksins opnuð heimasíða.  Þar má finna ýmsan fróðleik um heita vatnið, nauðsynlegar forvarnir sem og upplýsingar um fyrstu hjálp.  Í janúar 2008 afhenti Orkuveitan Sjóvá Forvarnarhúsi vefinn til eignar.