Heitt vatn

Heimili nýta heita vatnið til upphitunar, baða, snjóbræðslu o.fl. Notkun heita vatnsins er mæld skv. rúmmáli (m3).

Greiðsla fyrir heitt vatn er tvíþætt; fast gjald er daggjald háð stærð hitaveitumælis en óháð töxtum að öðru leyti. Stærð hitaveitumæla heimila er í flestum tilvikum 15-20 mm og falla undir flokk A í okkar verðskrá.  Fasta gjaldinu er skipt í A, B og C flokk eftir stærð mælis.  Breytilegt gjald er rúmmálsnotkun heita vatnsins.