Tæknilegar leiðbeiningar og tengiskápur
Hitaveituvatn til frístundahúsa er selt um hemil. Innifalið í grunnverði eru 3 mínútulítrar, sem er minnsta magn sem afhent er til frístundahúsa. Einfalt er að fjölga mínútulítrum óski viðskiptavinir eftir því, en þá er greitt fyrir hvern mínútulíter.
Hér má finna upplýsingar um tengigrindur, tengiskápa og tæknilegar upplýsingar.
Tengigrind heitt vatn
Tengigrind heitt og kalt vatn
Tengiskápur - tegund A - minni gerð
Tengiskápur - tegund B - stærri gerð
Tæknilegar upplýsingar um vatnsveitu
Tæknilegar upplýsingar um hitaveitu
Kerfið
Við hönnun veitunnar er gert ráð fyrir að hitastig vatns til notenda verði 50 til 80 °C og lágmarksþrýstingur er 2 bör. Orkuveitan getur ekki tekið ábyrgð á að þetta náist í öllum tilfellum, sérstaklega ekki í dreifðari byggðum.
Eigendum sumarhúsa á veitusvæðinu er bent á að gæta þarf vel að rekstraröryggi hitakerfisins og að forsendur í sumarhúsum eru ýmsar aðrar en í íbúðarhúsum í þéttbýli. Ótvírætt er lokað hringrásarkerfi öruggasta hitakerfið. Í slíku kerfi þarf varmaskipti, hringrásardælu, þensluker og annan tilheyrandi búnað, sem hafður er í til þess gerðum tengiskáp. Í lokaða hringrásarkerfinu er síðan hafður frostlögur en ekki vatn. Frostskemmdir á gegnumstreymiskerfum geta leitt af sér að heitt vatn leki inni í húsum með slæmum afleiðingum, ekki síst í timburhúsum. Ennfremur er ítrekað að huga þarf vel að öryggi neysluvatnslagna, bæði fyrir heitt og kalt vatn,og gæta þess að þær séu tæmdar og lokað fyrir inntök þegar ekki er stöðug viðvera í húsum. Sérstök ástæða er til að vara við hættu á að frjósi í lögnum undir gólfi þar sem náttúruleg loftræsting er.
Orkuveitan mælir með því að rofastýrður segulloki verði settur á lögnina fyrir heita neysluvatnið og hann hafður lokaður þegar enginn er í húsinu. Með því er minnkuð hætta á vatnstjóni ef rekstrartruflun verður á hitaveitunni.
Aðgengi
Nauðsynlegt er að tengiskápurinn sé utandyra við sumarhús vegna þess að ekki er dagleg viðvera í þeim. Það veitir öryggi samkvæmt því sem að ofan greinir.
Mikilvægt er að starfsmenn Orkuveitunnar komist að tengiskápnum og því nauðsynlegt að hafa samband við þá séu hlið læst við sumarhúsin, til að finna hentuga lausn á því.
Tengiskápar
Kröfur um gerð og útfærslu skápanna má finna undir hnappnum Tengiskápur og tengigrind hér til hægri. Í skápnum er komið fyrir hemlagrind og öðrum nauðsynlegum búnaði. Húseigendur annast sjálfir allar lagnir frá tengiskápnum inn í hús.
Afrennsli
Ennfremur ber húseigendum að tengja og ganga frá afrennsli hitakerfisins á fullnægjandi hátt á frostfríu dýpi, skv. leiðbeiningum byggingafulltrúa svæðisins. Víða er gert ráð fyrir að frárennsli verði lagt með öðru grávatni í hraun eða t.d.í malarfyllingu (púkk) umhverfis rotþró.
Ágætar leiðbeiningar um frágang fráveitulagna í dreifbýli má finna í RB blaði nr. (53).012, bls. 9.
Byggingarfulltrúar gefa einnig allar nauðsynlegar upplýsingar.
Vakin er sérstök athygli á að afrennsli hitakerfisins er á ábyrgð og í umsjá húseigenda.
Mikilvægt
Tengiskápur er settur utaná húsvegg eða t.d. á verönd og ef hann nær ekki til jarðar þarf að ganga þannig frá lögnum að ekki sé hætta á frostskemmdum.
Pípulagningameistari þarf að vera viðstaddur þegar vatni er hleypt á gegnumstreymiskerfi í fyrsta sinn en einungis húseigandi ef kerfið er lokað hringrásarkerfi.
Nánari upplýsingar um stærð og gerð tengiskápa fást hjá Orkuveitunni. Sjá einnig myndir af tengiskápum hér ofar á síðunni.
Fulltrúar Orkuveitunnar munu hafa samráð við hvern og einn umsækjanda um fyrirkomulag og frágang heimlagnar og inntaksbúnaðar svo og um framkvæmdatíma.