Munaðarnesveita
Veitusvæði Munaðarnesveitu er í Munaðarnesi og við Stóru Skóga í Borgarfirði.
Hönnun hitaveitunnar í Munaðarnesi, Munaðarnesveitu, hófst á árinu 2003, framkvæmdir hófust snemma árs 2004 og í maí var lokið við að byggja dælustöð við borholuna, reisa 230 rúmmetra miðlunargeymi við Stóru-Skóga og 6,7 kílómetra dreifikerfi fyrir 90 sumarhús og allar þjónustubyggingar á svæðinu.
Hafðu samband við þjónustuver OR ef þig vantar upplýsingar um heita vatnið, sími 516 6000.
Bilanavakt Orkuveitunnar er opin allan sólarhringinn sími 516 6200.
Kort af Munaðarnesveitu 