Hlíðaveita

Til Hlíðaveitu er helmings hlutur í borholu 23 að Efri-Reykjum og dreifikerfi veitunnar allt frá Efri-Reykjum að Múla, sem og Úthlíðarveita, Miðhúsaveita og Brekkuveita.

Til veitusvæðisins teljast m.a. sumarhúsabyggðir í Úthlíð, Brekkuskógi, Miðhúsaskógi og Skyggniskógi auk nokkurra bújarða.

Vatninu er dælt eftir stofnlögnum til hinna ýmsu svæða þar sem því er dreift til notendanna.

Til Hlíðaveitu telst einnig kaldavatnsveitan í Úthlíð sem Orkuveitan keypti og tók við rekstri á 1. maí 2004. Veitusvæði vatnsveitunnar er hið sama og hitaveitunnar í Úthlíð.

Hafðu samband við þjónustuver OR ef þig vantar upplýsingar um vatnið á svæðinu, sími 516 6000.
 

Bilanavakt Orkuveitunnar er opin allan sólarhringinn sími: 516 6200.
 
Kort af Hlíðaveitu