Heitir pottar

 Sú menning sem orðið hefur til í heitum pottum lauganna hefur líka skotið rótum á heimilum fólks og sumarhúsum. Fátt er notalegra en að leggjast í notalega heitan pott og láta fara vel um sig. Að mörgu er að hyggja þegar festa á kaup á heitum potti og hér eru upplýsingar sem geta komið að notum við val á heitum potti, ýmist hituðum með rafmagni eða heitt vatn er notað.

Rekstrarkostnaður hitaveitukyntra potta og rafmagnshitaðra potta getur verið mjög misjafn og ræðst meðal annars af staðsetningu og einangrun pottsins. Umgengni um pottinn ræður einnig miklu um rekstrarkostnaðinn, því hitatap getur orðið verulegt ef potturinn er opinn oft og lengi og þá eykst rekstrarkostnaðurinn.

Áhugaverð grein um heita potta