Spurt og svarað

Hækka fráveitugjöldin frá síðasta ári?
Já, verðskrá hækkar um 10,69% sem byggist á hækkun byggingavísitölu á síðasta ári.

Hvar get ég séð hvað ég borgaði í fyrra?
Íbúar í Reykjavík, Borgarbyggð og Akranesi geta farið inn á www.orkanmin.is, þjónustuvef OR og séð álagninguna frá því í fyrra.

Af hverju var breytt um álagningaraðferð fráveitugjalda í fyrra?
Álagning í Reykjavík og á Akranesi var áður miðuð við hlutfall af fasteignamati. Það er sanngjarnara að greiðsla fyrir þessa þjónustu sé í samhengi við stærð húsnæðis frekar en fasteignamat þess. Stærð húseigna ræður meiru um kostnað við þjónustuna en hvernig fasteignamarkaðurinn metur viðkomandi eign á hverjum tíma. Innheimta vatnsgjaldsins hefur til að mynda verið miðuð við stærð húsnæðis um árabil.


Hvað er fráveitugjaldið hátt?

Gjaldið er mismunandi fyrir fyrirtæki og heimili og eftir svæðum. Sjá verðskrá heimila og verðskrá fyrirtækja.


Veitir Orkuveitan afslátt af þessum gjöldum?
Orkuveitan veitir ekki afslátt af þjónustugjöldum sínum. Við bendum viðskiptavinum okkar sem áður hafa fengið afslátt hjá sveitarfélagi sínu af fráveitugjöldunum að hafa samband við viðkomandi sveitarfélag. Sveitarfélög hafa ekki lagalega heimild að veita afslátt af vatnsveitu.

Hvað er vatnsgjaldið hátt?
Gjaldið er mismunandi fyrir fyrirtæki og heimili og eftir svæðum. Sjá verðskrá heimila og verðskrá fyrirtækja.


Af hverju er Orkuveita Reykjavíkur að innheimta vatns og fráveitugjöldin en ekki sveitarfélögin með fasteignagjöldum eins og áður var?

Vatns- og fráveita eru hluti af grunnþjónustu OR. Fyrirtækið hefur til að mynda rekið fráveitu í Reykjavík frá árinu 2006. Sveitarfélögin hafa hins vegar innheimt rekstrargjöldin af neytendum og Orkuveitan hefur síðan fengið greiðslu frá þeim. Markmið með þessum breytingum er að einfalda boðleiðir. Fyrirtækið innheimti gjöldin beint af neytendum þannig að samskipti neytenda og þjónustuaðila verði milliliðalaus og skilvirkari.


Af hverju er fráveitugjaldið miðað við fermetra?
Það er sanngjarnara að greiðsla fyrir vatn á leið til notenda (neysluvatn og brunavarnir) og frá þeim (fráveita) sé í samhengi við stærð húsnæðis frekar en fasteignamat þess. Stærð húseigna ræður meiru um kostnað við þjónustuna en hvernig fasteignamarkaðurinn metur viðkomandi eign á hverjum tíma.


Í hvað fer fráveitugjaldið?

Samkvæmt lögum (09/2009) eiga gjöld fráveitu að standa undir rekstri hennar, þ.m.t. fjármagnskostnaði og fyrirhuguðum stofnkostnaði samkvæmt langtímaáætlun veitunnar.