Tengiskilmálar

Tæknilegir tengiskilmálar gilda fyrir tengingu neysluveitna með kerfismálspennu allt að 1000 V, sem tengd eru við lágspennudreifikerfi rafveitna eða verða tengd við þau. Um afhendingu á háspennu, svo sem til háspenntra rafskautskatla og mjög stórra iðnaðarhreyfla, skal fara eftir sérsamningi hverju sinni. Í samningi skal m.a. kveða á um gjald fyrir heimtaug, eignaraðild og fyrirkomulag hins háspennta búnaðar, þ.m.t. fyrirkomulag mælingar. Einnig skal gera annan samning við orkusala um orkuviðskipti, þar sem kveðið er á um mestu afl- og orkuúttekt, rof og aðra stýringu, ef við á, orkuverð og árlega lágmarksgreiðslu og loks gildistíma samnings. Frá slíkum samningi skal gengið áður en kaup eru fest á tækjum og búnaði. Ábyrgðarmaður háspennuvirkis skal hafa hlotið samþykki Brunamálastofnunar.

Tæknilegir tengiskilmálar raforkudreifingar , TTR, eru settir samkvæmt 23. gr. reglugerðar 1040/2005 um framkvæmd raforkulaga.

 

Bæklingar:
Hönnun og frágangur heimlagna 

Almennar upplýsingar fyrir húseigendur 
Leiðbeiningar um tengingar 
Tengingar við hitaveitu 
Tengingar við vatnsveitu 
Tengingar við rafveitu 
Tengingar við fráveitu