Heimlagnir
Samkvæmt skilmálum Orkuveitunnar á umsækjandi heimlagna í hús allt að 3000 m³ að leggja til ídráttarrör, mát og beygjur frá útvegg að inntaksrými.
Inntaksrými verður í öllum tilfellum að vera nægilega stórt til að rúma allan inntaksbúnað og í fjöleignarhúsum skal það vera í sameign sbr. gr. 86 í
byggingarreglugerð nr. 441/1998.
Þegar inntaksrýminu hefur verið lokað getur eigandi
sótt um heimlagnir. Orkuveitan grefur frá tengistað við lóðarmörk að húsi, leggur ídráttarrör og dregur allar heimlagnir um þær inn í hús. Einnig setur Orkuveitan upp skápa með nauðsynlegum inntaksbúnaði sem iðnmeistarar hússins tengja sínar lagnir við. Skápar eru þó ekki lagðir til þar sem óskað er eftir fleiri en einum sölumæli.
Tenging við dreifikerfi Orkuveitu Reykjavíkur
Almennar leiðbeiningar til viðskiptavina 
Skilmálar fyrir tengingu við hitaveitu
Skilmálar fyrir tengingu við vatnsveitu 
Skilmálar fyrir tengingu við rafmagnsveitu 
Skilmálar fyrir tengingu við fráveitu 
Móttaka heimlagna - Allar veitur ein tenging
Almennar upplýsingar fyrir húseigendur
Tæknilegir tengiskilmálar raforkudreifingar
Þessir tæknilegu tengiskilmálar gilda fyrir tengingu neysluveitna með kerfismálspennu allt að 1000 V, sem tengd eru við lágspennudreifikerfi rafveitna eða verða tengd við þau.
Um afhendingu á háspennu, svo sem til háspenntra rafskautskatla og mjög stórra iðnaðarhreyfla, skal fara eftir sérsamningi hverju sinni. Í samningi skal m.a. kveða á um gjald fyrir heimtaug, eignaraðild og fyrirkomulag hins háspennta búnaðar, þ.m.t. fyrirkomulag mælingar. Einnig skal gera annan samning við orkusala um orkuviðskipti, þar sem kveðið er á um mestu afl- og orkuúttekt, rof og aðra stýringu, ef við á, orkuverð og árlega lágmarksgreiðslu og loks gildistíma samnings. Frá slíkum samningi skal gengið áður en kaup eru fest á tækjum og búnaði. Ábyrgðarmaður háspennuvirkis skal hafa hlotið samþykki Brunamálastofnunar.
Tæknilegir tengiskilmálar raforkudreifingar
eru settir samkvæmt 23. gr. reglugerðar 1040/2005 um framkvæmd raforkulaga.