Verðskrá

Sjá verðskrá hér

Verðskrá gildir frá 01.04.2012

Almennt verð heimlagna gildir í þéttbýli á nýbyggingarsvæðum. Verðin gilda ekki þar sem búið er að ganga varanlega frá yfirborði og fullnægjandi veitulagnir ekki komnar að lóðarmörkum. Reiknist áætlaður heildarkostnaður við heimlögnina meira en 50% hærri en verðskrá segir til um þá greiðir umsækjandi til viðbótar allan kostnað sem verður umfram þessi 50%. Viðbótarkostnaður samkvæmt þessari reiknireglu er ekki innheimtur samhliða innheimtu yfirlengdargjalda. Geri húseigandi breytingu á skipulagi húss frá útgefnu skipulagi sveitafélags t.d. með því að færa til bílskúr eða annan inntaksstað ber hann til viðbótar allan kostnað við færslu eða breytingu lagna. Húseigandi sem óskar eftir breytingu eða færslu á inntaksbúnaði eða inntaksstað ber af því allan kostnað. Sama gildir um tímabundna aftengingu.

 

Rafmagnsheimtaugar

Neðangreind verð gilda í þéttbýli. Stærð rafmagnsheimtaugar ákvarðast af umsækjanda að teknu tilliti til fjölda íbúða í íbúðarhúsi og fyrirliggjandi notkun annars húsnæðis. Málstraumur heimtaugar miðast við stærð aðalvara húsveitu. Fari heimtaugastrengur lengra en 20 metra inn fyrir lóðarmörk greiðir umsækjandi aukalega fyrir allan kostnað sem fylgir þeirri lengingu. Virðisaukaskattur reiknast 25,5% á öll heimtaugagjöld rafmagns.

Tegund Málstraumur Heimtaugagjald Samtals m. 25,5%

  H1R  

16 A

138.880

174.294

H1R

50 A

162.400

203.812

H1R

63 A

204.624

256.803

H1R

100 A

324.800

407.624

H1R

200 A

649.600

815.248

H1R

315 A

1.023.120

1.284.016

H1R

400 A

1.299.200

1.630.496

H1R

630 A

2.046.240

2.568.031

H1R

710 A

2.306.080

2.894.130

Skýringar
Fyrir stærri rafmagnsheimtaug en 710 A er heimtaugagjald grundvallað á kostnaðarútreikningi í hverju tilviki.

Bráðabirgðaheimtaugar


    Taxti Málmstraumur Stofngjald Með 25,5% vsk

    H2R     

    50 A    

50.400

  63.252  

   H2R    

63 A

      53.760      

67.469

H2R

100 A

61.600

77.308

H2R

200 A

117.600

147.588

Skýringar
Þessi verð gilda þegar heimtaugastrengur af fullnægjandi stærð er kominn inn fyrir lóðarmörk.  Í öðrum tilvikum og fyrir hærri málstraum greiðist allur raunkostnaður við bráðabirgðaheimtaugina.

Frístundahúsaheimtaugar rafmagns

 Taxti Málstraumur Heimtaugagjald Samtals m. 25,5% vsk.

H3R

35 A

447.483

561.591

Skýringar
Umsækjandi leggur til ídráttarrör að lóðarmörkum. Fyrir hvern metra umfram 150 m af heildarlengd greiðir umsækjandi 2% af heimtaugargjaldi.

 

Tengigjald vegna skammtímanotkunar

Tegund

kr. Samtals m. 25,5% vsk.

Tengigjald

14.560

18.273

Skýringar
Greitt er sérstaklega bæði fyrir tengingu og aftengingu. Álag vegna vinnu utan dagvinnutíma er 55%. Þessi þjónusta er háð staðsetningu og aðstæðum í dreifikerfinu.

Önnur Tengiþjónusta

Umbeðin tengiþjónusta rafmagnseftirlitsmanns til rafverktaka utan dagvinnutíma á tímabilinu kl. 16:15 til 00:00 virka daga er kr. 24.300 (kr. 30.497 m/vsk) og eftir miðnætti og um helgar kr. 32.400 (kr. 40.662 m/vsk). Framangreind gjöld miðast við að hámarki 3ja tima útkall. Þurfi jafnframt þjónustu fleiri starfsmanna Orkuveitunnar utan dagvinnutíma greiðist sá kostnaður til viðbótar.

 

Heitt vatn - Heimæðagjöld

Neðangreind verð gilda í þéttbýli þar sem heildarlengd heimæðar er innan við 50 m, 2% yfirlengdargjald er tekið fyrir hvern metra. Sama gildir um hvern metra sem lengd heimæðar fer yfir 20 m innan lóðarmarka. Stærð heimæðar ákvarðast af tilgreindu vatnsmagni í umsókn en stærð heimæðar til upphitunar húsnæðis tekur mið af rúmmáli þess. Virðisaukaskattur reiknast 7% á heimæðargjöld fyrir heimæðar til húshitunar en 25,5% á heimæðargjöld til annarra nota.


Taxti Málstærð án vsk kr. m. 7% vsk m.25,5% vsk

H1H

20 mm

273.780

292.945

343.594

H1H

25 mm

427.781

457.728

536.865

H1H

32 mm

700.877

749.938

879.600

H1H

40 mm

1.095.120

1.171.778

1.374.376

H1H

50 mm

1.711.125

1.830.904

2.147.462

 

Skýringar
Ein tengigrind er innifalin í hverju heimæðargjaldi. Fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Kostnaðarverð stærri heimæða en 50 mm er reiknað sérstaklega fyrir hvert tilvik og m.a. tekið mið af flutningsgetu heimæðar, stofnæða og aðveitu.


 

Vinnuskúratengingar Heit vatn.

Taxti Málstærð án vsk kr. m. 7% vsk m. 25,5% vsk

H2H

20 mm

82.134

87.883

103.078

Skýringar:
Verðið gildir fyrir tengingu við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk ásamt einni tengigrind. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu er hún gjaldfærð í samræmi við raunkostnað.

 

Heimæðagjöld - Kalt vatn

Taxti Nafnmál - Tommumál Þvermál inntaks Verð Kr.

H1K

1"

32 mm

241.944

H1K

11/4"

40 mm

345.757

H1K

1 1/2"

50 mm

494.113

H1K

2"

63 mm

715.187

H1K

21/2"

75 mm

945.306

H1K

3"

90 mm

1.265.501

H1K

4"

110 mm

1.744.630

Skýringar:
Ein tengigrind er innifalin í hverju tengigjaldi, fyrir hverja aukatengigrind greiðist 10% af heimæðargjaldi viðkomandi málstærðar. Stærri heimæðar en 110 mm (3") eru gjaldfærðar í samræmi við raunkostnað, miðað er við sömu uppfærslureglu eftir stærðum og í töflunni og til viðbótar er tekið mið af flutningsgetu götu- eða stofnæðar sem aðliggjandi er.

 

 

Kalt vatn - Bygginga- og vinnuskúravatn

Byggingavatnskrani til og með 50 mm Verð kr.
Uppsettur byggingavatnskrani, heildarvinna 69.431 1)
Aftenging byggingavatnskrana, yfirborð ófrágengið 60.288
Aft. bygg. vatnskrana, yfirborð malbik eða steypa 159.363

Skýringar:
1Þetta verð gildir þegar tengt er við heimæðarenda sem kominn er inn fyrir lóðarmörk.  Orkuveitan leggur til búnað við tengingu byggingavatns. Notandi greiðir daggjald í samræmi við verðskrá fram að aftengingu. Byggingavatnskrani er aftengdur um leið og heimæð er tengd inn í hús samkvæmt umsókn, ekki er greitt sérstaklega fyrir aftengingu. Við aðrar aðstæður og fyrir stærri tengingu en 50 mm er tenging gjaldfærð í samræmi við raunkostnað.

Dreifbýli - Kaldavatnsheimæðar fyrir frístundahús

Staðsetning Málstærð Verð kr.
Heimæð lögð stök frá stofn- eða götuæð

25 mm

618.927
Heimæð lögð í sama skurð og samtímis heitavatnsheimæð OR

25 mm

444.502

Skýringar:
Þessi verð miðast við heimæð allt að 100 metrum að lengd. Lengri heimæð en 100 m eða stærri heimæð kostnaðarreiknast og gjaldfærist í samræmi við raunkostnað. Umsækjandi greiðir aukakostnað vegna klapparbrots.