Sækja um heimlögn

Samkvæmt skilmálum Orkuveitu Reykjavíkur á umsækjandi heimlagna í hús allt að 3000 m3 að leggja til ídráttarrör, mát og beygjur frá útvegg að inntaksrými. Inntaksrými verður í öllum tilfellum að vera nægilega stórt til að rúma allan inntaksbúnað og í fjöleignarhúsum skal það vera í sameign: Byggingarreglugerð  nr. 441/1998

Þegar inntaksrýminu hefur verið lokað getur eigandi sótt um heimlögn. Sjá verðskrá heimlagna.

Orkuveita Reykjavíkur grefur frá tengistað við lóðarmörk að húsi, leggur ídráttarrör og dregur allar heimlagnir um þær inn í hús. Orkuveitan setur einnig upp skápa með nauðsynlegum inntaksbúnaði sem iðnmeistarar hússins tengja sínar lagnir við.  Skápar eru þó ekki lagðir til þar sem óskað er eftir fleiri en einum sölumæli.

Upplýsingar um tengingu við dreifikerfi Orkuveitu Reykjavíkur:

Skilmálar um tengingu við dreifikerfi Orkuveitu Reykjavíkur 
Skilmálar fyrir tengingu við hitaveitu 
Skilmálar fyrir tengingu við vatnsveitu
Skilmálar fyrir tengingu við rafmagnsveitu 
Skilmálar fyrir tengingu við fráveitu 

Uppsetning inntaksmáta (Allar veitur - ein tenging) 
Ýmsar upplýsingar um skil milli veitu og húss 
Skilmálar fyrir lagningu og tengingu heimlagna 
Skilmálar um afhendingu og sölu orku 

Heimasíða Brunamálastofnunar