Sjóveita

Sjóveitan er ein af þeim afurðum sem Orkuveitan býður til sölu.


Sjórinn er jarðsjór sem tekinn er úr borholu í malarlögum við Kirkjusand í Reykjavík. Jarðsjórinn inniheldur um 85% sjó, sem blandast við grunnvatn. Seltumagn er um 28 prómill.

Áður en sjórinn er sendur til neytenda er hann hreinsaður í sandsíu og geislaður með útfjólubláum geislum sem drepur allar bakteríur. Hitastig á sjónum sveiflast með útihitastigi, en gera má ráð fyrir að það sé um 6-12°C.


Það þykir mjög heilnæmt og gott fyrir húðina að baða sig í sjó, auk þess sem það er mjög slakandi fyrir líkamann. Í jarðsjónum er að finna mangan sem er gott fyrir húð psoriasis sjúklinga. Helstu notendur sjóveitunnar í dag eru heilsulindir, en auk þess er tilvalið að nota sjóinn í fiskabúr fyrir sjávardýr.

Nánari upplýsingar um Sjóveituna veitir Söludeild Orkuveitunnar í tölvupósti eða síma 516-7600.

Sjóveita  (272 Kb)