Rafmagn

Ung kona horfir á ljósÞegar ákveða á verð á rafmagni eru fyrir hendi nokkrir taxtar sem hægt er að velja um.  Þegar hagstæðasti taxtinn er valinn er starfsemi þess lögð til grundvallar.  Sem dæmi eru flest fyrirtæki sem nota 200.000 kWh eða meira yfir árið á afltaxta sem er hagstæðastur ef nýting er jöfn og ekki með miklum sveiflum. 
Fyrir smærri fyrirtækin er almenni taxtinn yfirleitt hagstæðasti kosturinn og ef fyrirtæki nota mikið rafmagn yfir þann tíma sem lítið álag er á dreifikerfum rafmagnsins og svo lítið rafmagn á álagstímum dreifikerfisins þá er tímataxtinn oft besti kosturinn.