Kalt vatn
Vatnsgjald samanstendur af fastagjaldi á hverja matseiningu og breytilegu gjaldi á hvern fermetra miðað við hverja matseiningu samkvæmt fasteignamati. Bílskúrar og sambærilegt húsnæði er undanþegið fastagjaldi. Vatnsgjald fer aldrei yfir 0,5 % af fasteignamati. Vatnsgjald þetta er miðað við byggingarvísitölu og uppfærist skv. henni í desember ár hvert.
Fyrirtæki greiða notkunargjald auk vatnsgjalds skv. lögum (7 gr.laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004). Notkunargjald þetta skal greiða samkvæmt notkun vatns mældri í rúmmetrum. Notkunargjald er miðað við byggingarvísitölu og uppfærist skv. henni á 3 mánaða fresti.
Sala á köldu vatni er undanþegin virðisaukaskatti.